HIFEM tækni í stað hefðbundinna æfinga
Markviss vöðvaörvun með HIFEM
HIFEM tæknin gerir þér kleift að virkja grindarbotnsvöðvana á markvissan hátt, með öflugum samdráttum sem erfitt getur verið að ná fram með hefðbundnum grindarbotnsæfingum einum saman. Þannig fær grindarbotninn endurtekna og skipulagða vöðvaörvun á meðan þjálfunin stendur yfir.
HIFEM þjálfunin er einföld í framkvæmd og krefst ekki sérstakrar líkamlegrar áreynslu á meðan þú situr í stólnum. Markmiðið er að styðja við styrk, stjórn og virkni grindarbotnsins með reglulegri og markvissri þjálfun.
Árangur
Upplifun og framvinda eru einstaklingsbundnar. Eftir fyrstu tímana geta sumir fundið fyrir vægum vöðvaeymslum í grindarbotnsvöðvum á meðan líkaminn er að venjast þjálfuninni. Tilfinningin getur verið svipuð og eftir aðra líkamsþjálfun og minnkar yfirleitt eftir því sem líkaminn aðlagast.
Margir byrja að finna breytingu á styrk eða virkni grindarbotnsins eftir um 5–6 tíma, en hjá sumum getur það gerst fyrr eða tekið lengri tíma.
Algengasta þjálfunarplanið hjá Partera er 10 tímar yfir 5 vikna tímabil, þar sem mætt er tvisvar í viku. Regluleg mæting og samfella í þjálfuninni skipta máli þegar unnið er að styrk, stjórn og virkni grindarbotnsins.
Framvindan getur meðal annars ráðist af upphafsstöðu og markmiðum hvers og eins. Mikilvægt er því að gefa grindarbotninum tíma og vinna markvisst með þjálfunina yfir allt tímabilið.


Hvað gerist eftir 10 tímana?
Eftir upphaflega 10 tíma planið tekur við viðhaldsfasi. Hjá Partera er almennt miðað við að koma í einn viðhaldstíma á 3–4 mánaða fresti til að styðja við þann árangur sem hefur náðst.
Tíðni viðhaldstíma getur verið breytileg eftir því hvernig hver og einn upplifir framvinduna og hvaða markmið hann hefur til lengri tíma.
Markmiðið með viðhaldsþjálfun er að halda grindarbotninum virkum og gera þjálfunina að hluta af reglulegri heilsurækt, frekar en að líta á hana sem tímabundið átak.
Hjá Partera fer grindarbotnsþjálfun fram í sérstökum HIFEM-stól sem notar rafsegulörvun til að virkja vöðva grindarbotnsins á markvissan hátt. Þú situr fullklædd/ur í stólnum á meðan þjálfunin fer fram og getur farið beint aftur í daglega rútínu að tíma loknum.
Þjálfun með HIFEM
Helstu kostir þjálfunarinnar
-
Markviss þjálfun grindarbotnsins:
HIFEM-tæknin virkjar vöðva grindarbotnsins með endurteknum samdráttarlotum og styður þannig við styrk, stjórn og virkni. -
Þægileg þjálfun án inngrips:
Þú situr fullklædd/ur í grindarbotnsstólnum á meðan þjálfunin fer fram og getur farið beint aftur í daglega rútínu að tíma loknum. -
40 mínútna tími:
Bókaður tími er 40 mínútur, þar af um 30 mínútur í grindarbotnsstólnum. Afgangurinn er ætlaður til að koma sér fyrir fyrir þjálfun og ganga frá að henni lokinni. -
Fyrir konur og karla:Grindarbotnsvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki hjá bæði konum og körlum og markviss þjálfun getur stutt við styrk, stjórn og virkni þeirra á ólíkum æviskeiðum.
-
Einstaklingsmiðuð þjálfun:
Styrkur örvunar og þjálfunarplan eru stillt út frá þægindum, markmiðum og þörfum hvers og eins.
1. Sest í stólinn, velur þitt kerfi
Þú sest fullklædd/ur í grindarbotnsstólinn og velur það þjálfunarkerfi sem hentar þínum markmiðum. Styrkur örvunar er stilltur að þér áður en HIFEM-þjálfunin hefst.
Rafsegulsviðið verkar í gegnum fatnað og virkjar vöðva grindarbotnsins á meðan þú situr þægilega í stólnum.
Svona fer þjálfunin fram
2. Vöðvaæfing á meðan þú slakar
Á meðan þjálfunin fer fram framkallar HIFEM-tæknin endurteknar samdráttarlotur í vöðvum grindarbotnsins. Þannig fær grindarbotninn markvissa og skipulagða vöðvaörvun án þess að þú þurfir sjálf/ur að stýra samdráttunum.
Um 30 mínútur af bókuðum tíma fara í þjálfun í stólnum og á meðan getur þú setið afslöppuð/aður og notið rólegrar stundar.
Svona fer þjálfunin fram
3. Styrkur, stjórn og virkni
Regluleg HIFEM þjálfun er ætluð til að styðja við styrk, úthald og stjórn grindarbotnsvöðvanna.
Markmiðið er að bæta getu þeirra til að bregðast við hreyfingu og álagi og styðja þannig við virkni grindarbotnsins í daglegu lífi.
