top of page
Algengar spurningar um HIFEM
tækni og grindarbotninn



HIFEM-tækni notar öflugt, stýrt rafsegulsvið til að virkja grindarbotnsvöðvana og framkalla endurtekna vöðvasamdrætti.Rafsegulspóla í setu stólsins sendir púlsa að grindarbotnssvæðinu sem örva taugar og vöðva. Þannig fær grindarbotninn mikið og markvisst þjálfunaráreiti á stuttum tíma, án þess að þú þurfir sjálf/ur að framkvæma hvern samdrátt.
Grindarbotninn er samsettur úr vöðvum og bandvef sem mynda eins konar skál neðst í mjaðmagrindinni. Vöðvarnir styðja við líffæri grindarholsins og gegna mikilvægu hlutverki í stjórn á þvagblöðru og þörmum. Þeir tengjast einnig líkamsstöðu, stöðugleika og kynheilbrigði.Grindarbotnsvöðvarnir geta veikst eða orðið erfiðari í virkjun, meðal annars í tengslum við:Meðgöngu og fæðinguAldurstengdar breytingarTíðahvörfSkurðaðgerðirLangvarandi hósta eða hægðatregðuMikla eða endurtekna líkamlega áreynsluBreytingar eftir aðgerð á blöðruhálskirtliErfiðleika við að finna og virkja grindarbotninn réttHjá fólki í yfirþyngdVeikur grindarbotn getur meðal annars komið fram sem þvagleki, skyndileg og sterk þvaglátaþörf, minnkuð stjórn eða tilfinning um slappleika í grindarbotninum.
Stóllinn myndar rafsegulpúlsa sem örva taugarnar sem stjórna grindarbotnsvöðvunum. Við örvunina dragast vöðvarnir endurtekið saman og slaka síðan á.Samdrættirnir eiga sér stað sjálfkrafa á meðan þú situr í stólnum og geta hjálpað líkamanum að virkja vöðva sem erfitt getur verið að finna eða þjálfa með hefðbundnum grindarbotnsæfingum einum saman.Markmið þjálfunarinnar er að styðja við:Aukinn styrk grindarbotnsvöðvaBetra úthaldBætta samhæfingu vöðva og taugaAukna stjórn á grindarbotninumMinnkun einkenna sem tengjast veikleika í grindarbotni
Styrkur örvunarinnar er stilltur út frá þörfum og þoli hvers einstaklings. Meðan á þjálfuninni stendur finnur þú fyrir samdráttum og titringi í grindarbotninum, en þjálfunin á ekki að vera sársaukafull.
Grindarbotnsþjálfun með rafsegulörvun getur meðal annars hentað fullorðnum konum og körlum sem glíma við einkenni sem tengjast veikleika eða skertri stjórn grindarbotnsvöðva.Þvagleki við áreynsluÞvagleki við áreynslu kemur til dæmis fram þegar lekur við hósta, hnerra, hlátur, hlaup, hopp eða aðra líkamlega áreynslu. Styrking grindarbotnsins getur stutt við betri lokun og stjórn þegar þrýstingur eykst í kviðarholinu.Bráð þvaglátaþörf og blandaður þvaglekiSumir upplifa skyndilega og sterka þörf fyrir að komast á salerni, tíð þvaglát eða leka áður en þeir ná á salernið. Aðrir finna bæði fyrir áreynsluleka og bráðri þvaglátaþörf. Rafsegulörvun getur hjá sumum verið hluti af heildrænni nálgun ásamt blöðruþjálfun og einstaklingsmiðaðri grindarbotnsþjálfun.Eftir meðgöngu og fæðinguMeðganga og fæðing geta haft áhrif á styrk og samhæfingu grindarbotnsins. Þegar líkaminn hefur fengið viðeigandi tíma til bata getur þjálfunin stutt við endurhæfingu og hjálpað til við að endurvekja tengingu við grindarbotnsvöðvana.Á breytingaskeiði og eftir tíðahvörfHormónabreytingar, aldur og breytingar á bandvef geta haft áhrif á þvagfæri og grindarbotn. Markviss grindarbotnsþjálfun getur stutt við styrk og stjórn og hjálpað sumum að draga úr einkennum.Fyrir karlaKarlar geta einnig glímt við veikan grindarbotn, þvagleka og risvandamál. Þjálfunin getur meðal annars komið til greina hjá körlum sem finna fyrir leka eða skertri stjórn, þar á meðal eftir aðgerð á blöðruhálskirtli. Slík þjálfun ætti að fara fram í samráði við viðeigandi heilbrigðisstarfsfólk.Þegar erfitt er að finna grindarbotninnMargir eru óvissir um hvort þeir séu að virkja grindarbotnsvöðvana rétt. Stóllinn getur hjálpað einstaklingnum að finna samdráttinn og aukið meðvitund um staðsetningu og virkni vöðvanna.
Árangur og upplifun eru einstaklingsbundin og ræðst meðal annars af einkennum, styrk grindarbotnsins, heilsufari og því hversu lengi vandamálið hefur verið til staðar. Sumir finna breytingar snemma í ferlinu en hjá öðrum tekur lengri tíma að byggja upp styrk og stjórn. Yfirleitt er mælt með þjálfunarröð fremur en stökum tímum. Við útbúum áætlun út frá þínum þörfum og markmiðum.Ekki er hægt að tryggja ákveðna niðurstöðu og þjálfunin kemur ekki í stað læknisskoðunar þegar einkenni eru ný, mikil eða óútskýrð.
Gangráður, bjargráður eða annað ígrætt rafeindatæki, svo sem taugaörvi eða ígrædd lyfjadæla.ÞungunKrabbamein, virkur illkynja sjúkdómur eða æxli á þjálfunarrsvæðinu.SýkingarMálm á þjálfunarsvæðinu, s.s. lokkar í kynfærum, gullkorn eftir blöðruhálskirtilskrabbameins meðferð, ígræddir málmar innan 15 cm frá þjálfunararsvæðiFlogaveikiÍgrædd lyfjadælaSaga um heilablóðfall, hjartaáfall eða þekkt hjartaveikiVirk blæðing eða alvarleg blóðstorkutruflunNýleg aðgerð eða ógróið sár á grindar-, kvið- eða mjóbakssvæði, þar til fullnægjandi gróandi hefur átt sér staðVerulega grindarbotnsverki, vaginismus eða ofspenntan grindarbotn. Stóllinn framkallar vöðvasamdrætti og styrking er ekki endilega rétt þegar meginvandinn er skert slökun
Mælt er með að vera í þægilegum fötum, buxum án málma og fjarlægja úr vösum síma, lykla og belti. Ef þú er með skartgripi í kynfærum þarf einnig að fjarlægja þá. Þetta eru öryggisráðstöfun en ekki sjúkdómsfræðileg frábending.
Hjá okkur er næði og þægindi viðskiptavina í fyrsta sæti. Þjálfunin fer fram í einkarrými þar sem þú getur slakað á í næði. Einn af stærstu kostum tækninnar er að þú situr í stólnum í þínum eigin fötum og þarft ekki að afklæðast. Allar persónuupplýsingarr eru meðhöndlaðar af fullum trúnaði. Þú færð einnota kóða til þess að komast inn í herbergið.
Já, en mælt er með að bíða í u.þ.b. 3-6 mánuði eftir fæðingu og ráðfæra sig við lækni fyrst.
Já, þjálfunin getur hjálpað körlum að ná aftur stjórn á þvaglátum eftir aðgerðir eða vegna veikleika í grindarbotni.
Það er mikilvægt eftir að þú klárar þína þjálfun að halda áfram að vera meðvituð/aður og æfa grindabotninn. Sumir þurfa að koma í einn og einn tíma til að ná aftur upp styrk.
Mælt er með að fara í 10 tíma til að ná góðum árangri. Best er að koma þétt í tímana og fara í 1-2 tíma á viku yfir 5 vikna tímabil.
Mælt er með þægilegum bómullarfötum eða íþróttafötum. Forðist buxur með mikið af málmhlutum eins og rennilásum.
Nei, en þú gætir fundið fyrir smá vöðvaþreytu í grindarbotni eins og eftir aðra líkamsrækt.
Verðskrána okkar er að finna undir "kaupa kort" flipanum. Hagstæðast er að kaupa kort.
Mörg stéttarfélög styrkja grindarbotnsþjálfun. Við mælum með að kanna réttindi þín hjá þínu félagi. Ef óskað er eftir kvittun þarf að svara bókunarpósti með kennitölu svo það sé hægt að útbúa kvittun fyrir stéttarfélagið.
Við bjóðum upp á greiðslur með korti í gegnum örugga greiðslugátt á bókunarsíðunni eða millifærslu ef óskað er eftir því.
Kortin hjá okkur eru persónubundin og ekki hægt að deila þeim með öðrum.
Þú situr fullklædd/ur í HIFEM-stólnum á meðan þjálfunin fer fram. Styrkurinn er stilltur að þínum þörfum og þægindum og þú finnur fyrir endurteknum samdráttum í grindarbotnsvöðvunum.Sjálf þjálfunin tekur um 30 mínútur og að henni lokinni getur þú haldið áfram með daglegar athafnir eins og venjulega.
Já. Grindarbotnsvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki hjá bæði konum og körlum og geta haft áhrif á meðal annars þvagstjórn, stöðugleika og kynheilbrigði.Þarfir kynjanna geta þó verið ólíkar og því er mikilvægt að þjálfunin taki mið af markmiðum, einkennum og aðstæðum hvers og eins.
HIFEM-þjálfun getur hentað konum og körlum sem vilja bæta styrk, stjórn og virkni grindarbotnsvöðvanna. Hún getur meðal annars átt við þegar markmiðið er að styðja við betri þvagstjórn, kynheilbrigði eða almenna grindarbotnsheilsu.Þarfir og einkenni eru einstaklingsbundin og HIFEM-þjálfun hentar ekki við öllum einkennum frá grindarbotni.
Árangur er einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir upphafsstöðu, einkennum og markmiðum. Sumir finna breytingar eftir fyrstu skiptin, en styrkur, stjórn og virkni grindarbotnsins byggjast almennt upp með reglulegri þjálfun yfir tíma.Því er mikilvægt að líta á HIFEM sem markvissa þjálfun þar sem árangur þróast með áframhaldandi og reglulegri þjálfun.
Nei, almennt er ekki þörf á sérstökum batatíma eftir HIFEM-þjálfun og flestir geta haldið áfram með daglegar athafnir strax að tíma loknum.Sumir geta fundið fyrir vægri þreytu eða eymslum í vöðvum eftir þjálfun, líkt og eftir aðra vöðvaþjálfun.
Já. Flestir geta farið beint aftur í vinnu, hreyfingu og aðrar daglegar athafnir að HIFEM-þjálfun lokinni.Þjálfunin krefst almennt ekki sérstaks batatíma, þó sumir geti fundið fyrir vægri þreytu eða eymslum í vöðvum eftir tímann.
Nei. Þú þarft ekki læknisbeiðni eða tilvísun til að bóka tíma hjá Partera og getur bókað beint í gegnum vefinn.Fyrir fyrsta tíma er farið yfir helstu upplýsingar og mögulegar frábendingar til að tryggja að HIFEM-þjálfun henti þér.
HIFEM-þjálfun hentar ekki öllum. Meðganga, ákveðin rafræn ígræði eða málmígræði á eða nálægt þjálfunarsvæðinu og ákveðnar heilsufarslegar aðstæður geta verið frábendingar.Fyrir fyrsta tíma er farið yfir mögulegar frábendingar. Ef þú ert óviss um hvort HIFEM-þjálfun henti þér er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun hefst.
Best er að vera í þægilegum fötum án málmhluta svo þjálfunin geti farið fram á öruggan og þægilegan hátt.
Þjálfunin á ekki að vera sársaukafull. Þú finnur fyrir greinilegum og kröftugum samdráttum í grindarbotnsvöðvunum á meðan þjálfunin fer fram.Styrkurinn er stilltur að þínum þörfum og þægindum og hægt er að aðlaga hann meðan á þjálfun stendur.
Við bókum aðeins lengri tíma svo nægt svigrúm sé fyrir undirbúning og stillingar áður en þjálfunin hefst.
Árangur er einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir upphafsstöðu, einkennum og markmiðum. Sumir finna breytingar eftir fyrstu skiptin, en styrkur og stjórn byggjast almennt upp með reglulegri þjálfun yfir tíma.Hjá Partera er algengt að miða við 10 skipti á 5 vikum, tvisvar í viku, til að gefa grindarbotnsvöðvunum reglulegt og markvisst þjálfunaráreiti.
Nei. Þú getur bókað fyrsta tíma beint hjá Partera án þess að fara fyrst í sérstaka ráðgjöf.Í upphafi er farið yfir markmið þín, helstu upplýsingar og mögulegar frábendingar áður en þjálfunin hefst.
Þarfir fyrir grindarbotnsþjálfun geta komið fram á mismunandi æviskeiðum hjá bæði konum og körlum. HIFEM-þjálfun getur meðal annars átt við eftir barneignir, á breytingaskeiði, með hækkandi aldri eða þegar markmiðið er að bæta styrk og stjórn grindarbotnsins.Mikilvægt er þó að taka mið af heilsufari, einkennum og mögulegum frábendingum áður en þjálfun hefst.
Styrkir og endurgreiðslur eru mismunandi eftir stéttarfélögum og réttindum hvers og eins. Sum stéttarfélög bjóða heilsu- eða líkamsræktarstyrki sem mögulega er hægt að nýta fyrir grindarbotnsþjálfun.Við mælum með að þú kannir réttindi þín hjá þínu stéttarfélagi eða tryggingaraðila áður en þú bókar.
Það er einstaklingsbundið. Sumir finna fyrir aukinni meðvitund um grindarbotninn eða breytingu á vöðvavirkni eftir fyrstu skiptin.Styrkur, stjórn og virkni grindarbotnsins byggjast þó almennt upp með reglulegri þjálfun yfir tíma og því er mikilvægt að meta árangur út frá heildarþjálfuninni.
Þú getur breytt eða afbókað bókuðum tíma samkvæmt afbókunarskilmálum Partera. Þetta þarf að gerast 2 dögum fyrir bókaðan tíma, svo hægt sé að bjóða næstu aðilum upp á tímann.
Nei það er ekki í leyfilegt.Ef þú ert þunguð eða telur möguleika á þungun er mikilvægt að láta vita áður en þjálfun hefst.
Ef þú ert með lykkju er mikilvægt að láta vita af því áður en HIFEM-þjálfun hefst. Meta þarf hvort tegund lykkjunnar og efni hennar hafi áhrif á hvort þjálfunin henti.Koparlykkja er búin til úr málmi og er því ekki leyfileg vegna rafsegulbylgja.Ef óvissa er til staðar er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun hefst.
Það er einstaklingsbundið hvenær líkaminn er tilbúinn fyrir HIFEM-þjálfun eftir fæðingu og taka þarf mið af bata, einkennum og aðstæðum hverrar konu.Ef um keisaraskurð, fylgikvilla, verki eða önnur einkenni er að ræða er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun hefst.
Það er einstaklingsbundið hversu lengi árangur helst og getur meðal annars ráðist af upphafsstöðu, aldri, lífsstíl og áframhaldandi þjálfun.Líkt og með aðra vöðva þarf að viðhalda styrk og virkni grindarbotnsins. Sumir kjósa því reglulega viðhaldsþjálfun eftir að grunnþjálfun lýkur.
HIFEM-þjálfun getur verið öflug leið til að virkja og styrkja grindarbotnsvöðvana, en hefðbundnar grindarbotnsæfingar geta einnig verið gagnlegar.Markmiðið er að bæta styrk, stjórn og líkamsvitund og því getur verið gagnlegt að sameina mismunandi leiðir eftir þörfum og markmiðum hvers og eins.
Já. Flestir geta haldið áfram sinni venjulegu líkamsrækt samhliða HIFEM-þjálfun.Grindarbotninn vinnur með öðrum vöðvum líkamans við hreyfingu og stöðugleika og markviss grindarbotnsþjálfun getur því verið hluti af fjölbreyttri og reglulegri líkamsrækt.
HIFEM-þjálfun getur stutt við aukinn styrk og betri stjórn grindarbotnsvöðvanna og þannig hjálpað til við að draga úr ákveðnum einkennum þvagleka.Þvagleki getur þó átt sér mismunandi orsakir og árangur er einstaklingsbundinn. Ef einkenni eru mikil, nýtilkomin eða óútskýrð er mikilvægt að fá faglegt mat.
Grindarbotnsvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki í kynheilbrigði hjá bæði konum og körlum. Styrkur, stjórn og góð virkni grindarbotnsins geta meðal annars haft áhrif á vöðvastjórn, næmi og kynferðislega virkni.HIFEM-þjálfun miðar að því að virkja og styrkja grindarbotnsvöðvana og getur þannig stutt við bætta virkni og kynheilbrigði.
Aðgerð á blöðruhálskirtli getur haft áhrif á styrk og stjórn grindarbotnsins og meðal annars leitt til breytinga á þvagstjórn.Markviss grindarbotnsþjálfun getur stutt við endurheimt styrks og stjórnunar þegar líkaminn er tilbúinn. Mikilvægt er að fá samþykki viðeigandi heilbrigðisstarfsmanns áður en HIFEM-þjálfun hefst eftir aðgerð.
Grindarbotnsvöðvarnir gegna hlutverki í kynheilbrigði og risvirkni karla. Styrkur og góð stjórn þessara vöðva geta meðal annars stutt við starfsemi þeirra kerfa sem taka þátt í risvirkni.HIFEM-þjálfun miðar að því að virkja og styrkja grindarbotnsvöðvana og getur þannig stutt við kynheilbrigði og risvirkni hjá sumum körlum. Árangur er þó einstaklingsbundinn og risvandamál geta átt sér margar mismunandi orsakir.
Grindarbotnsvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki í stuðningi við líffæri grindarholsins og markviss þjálfun getur stutt við styrk og virkni þeirra.Sig eða framfall getur þó verið mismikið og átt sér ólíkar orsakir. HIFEM-þjálfun hentar því ekki sjálfkrafa í öllum tilfellum og mikilvægt er að fá faglegt mat ef einkenni eru til staðar.
Grindarbotnsvöðvarnir taka þátt í stjórn á þvaglátum og góð virkni þeirra getur stutt við betri þvagstjórn. Markviss grindarbotnsþjálfun getur því hjálpað sumum sem finna fyrir tíðri eða bráðri þvagþörf.Slík einkenni geta þó átt sér mismunandi orsakir. Ef þau eru nýtilkomin, mikil eða óútskýrð er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun hefst.
Grindarbotnsvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki í stjórn á hægðum og lofti. Markviss þjálfun getur stutt við aukinn styrk og betri stjórn þessara vöðva hjá sumum einstaklingum.Vandamál tengd hægðastjórn geta þó átt sér mismunandi orsakir. Ef einkenni eru viðvarandi, mikil eða óútskýrð er mikilvægt að fá faglegt mat.
HIFEM-þjálfun miðar fyrst og fremst að virkjun og styrkingu grindarbotnsvöðvanna og er því ekki endilega rétt nálgun þegar einkenni tengjast of mikilli spennu í grindarbotni.Ef þú finnur fyrir verkjum, mikilli spennu, erfiðleikum við tæmingu eða öðrum einkennum sem geta tengst ofvirkum grindarbotnsvöðvum er mikilvægt að fá faglegt mat áður en farið er í styrkjandi þjálfun.
Já. HIFEM-þjálfun miðar að því að virkja og styrkja grindarbotnsvöðvana með endurteknum vöðvasamdráttum og getur þannig stutt við aukinn styrk, betri stjórn og virkni.Árangur er einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir upphafsstöðu, einkennum og þjálfunaráætlun.
Já. HIFEM-þjálfun getur hjálpað til við að virkja grindarbotnsvöðvana og auka meðvitund um starfsemi þeirra, sérstaklega þegar erfitt er að finna eða virkja vöðvana sjálf/ur.Með reglulegri þjálfun getur þetta stutt við betri stjórn, samhæfingu og líkamsvitund. Árangur er þó einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir upphafsstöðu og einkennum.
Já. Grindarbotnsvöðvarnir, líkt og aðrir vöðvar líkamans, þurfa reglulega virkni og þjálfun til að viðhalda styrk og starfsemi.HIFEM-þjálfun getur verið ein leið til að viðhalda styrk, stjórn og virkni grindarbotnsins, einnig hjá einstaklingum sem eru ekki að glíma við ákveðin einkenni en vilja sinna grindarbotnsheilsu sinni markvisst.
Já. Markviss grindarbotnsþjálfun getur verið hluti af því að viðhalda styrk, stjórn og góðri starfsemi grindarbotnsins til lengri tíma, líkt og regluleg þjálfun annarra vöðvahópa.HIFEM-þjálfun getur því nýst einstaklingum sem vilja sinna grindarbotnsheilsu sinni markvisst, jafnvel þótt þeir séu ekki að glíma við ákveðin einkenni.
Já. Hormónabreytingar á breytingaskeiði geta haft áhrif á styrk, starfsemi og vefi grindarbotnsins og sumar konur finna meðal annars fyrir breytingum á þvagstjórn eða kynheilbrigði.HIFEM-þjálfun getur stutt við virkjun, styrk og stjórn grindarbotnsvöðvanna og verið hluti af markvissri grindarbotnsþjálfun á þessu æviskeiði. Árangur og þarfir eru þó einstaklingsbundin.
Já, þegar líkaminn er tilbúinn. Meðganga og fæðing geta haft áhrif á styrk, stjórn og samhæfingu grindarbotnsvöðvanna og sumar konur finna fyrir einkennum eins og þvagleka eða minni stjórn eftir fæðingu.HIFEM-þjálfun getur stutt við endurheimt styrks og stjórnunar í grindarbotninum sem hluti af markvissri uppbyggingu eftir fæðingu. Hvenær rétt er að hefja þjálfun er einstaklingsbundið og fer meðal annars eftir bata, einkennum og hvernig fæðingin gekk.
Já. Með hækkandi aldri geta orðið breytingar á styrk, stjórn og starfsemi grindarbotnsvöðvanna hjá bæði konum og körlum.HIFEM-þjálfun getur stutt við að viðhalda eða bæta styrk og stjórn grindarbotnsins og þannig stutt við þvagstjórn, daglega virkni og almenna grindarbotnsheilsu. Þarfir og árangur eru þó einstaklingsbundin.
Já. Grindarbotninn er mikilvægur hluti af stöðugleika og stjórn líkamans og vinnur með djúpum kvið- og bakvöðvum og þindinni við hreyfingu og álag.HIFEM-þjálfun getur stutt við styrk og stjórn grindarbotnsins og þannig verið hluti af markvissri líkamsrækt, hvort sem markmiðið er að bæta virkni eða viðhalda góðri grindarbotnsheilsu.
Grindarbotnsvöðvarnir vinna með þindinni og djúpum kvið- og bakvöðvum að stöðugleika mjaðmagrindar og bols.HIFEM-þjálfun getur stutt við styrk og stjórn grindarbotnsvöðvanna og þannig verið hluti af markvissri þjálfun fyrir góða líkamsstjórn og stöðugleika.
Við hlaup, hopp og aðra líkamlega áreynslu þarf grindarbotninn að geta brugðist hratt við auknu álagi og unnið með öðrum vöðvum líkamans.HIFEM-þjálfun getur stutt við styrk og stjórn grindarbotnsvöðvanna og þannig hjálpað til við að bæta virkni þeirra við hreyfingu og líkamlegt álag.
Áreynsluþvagleki getur meðal annars komið fram við hósta, hnerra, hlaup, hopp eða aðra líkamlega áreynslu þegar þrýstingur á grindarbotninn eykst.HIFEM-þjálfun getur stutt við aukinn styrk og betri stjórn grindarbotnsvöðvanna og þannig hjálpað til við að draga úr einkennum hjá sumum einstaklingum. Árangur er þó einstaklingsbundinn og þvagleki getur átt sér mismunandi orsakir.
Meðganga og fæðing geta haft áhrif á styrk, stjórn og samhæfingu grindarbotnsvöðvanna og þvagleki er eitt þeirra einkenna sem sumar konur finna fyrir eftir fæðingu.HIFEM-þjálfun getur stutt við endurheimt styrks og betri stjórn grindarbotnsins og þannig hjálpað til við að draga úr einkennum hjá sumum konum. Hvenær rétt er að hefja þjálfun er einstaklingsbundið og taka þarf mið af bata og einkennum eftir fæðingu
Eftir aðgerð á blöðruhálskirtli geta orðið breytingar á styrk og stjórn grindarbotnsvöðvanna og sumir karlar finna fyrir þvagleka á meðan líkaminn er að jafna sig.Markviss grindarbotnsþjálfun getur stutt við endurheimt styrks og betri þvagstjórn. HIFEM-þjálfun getur verið ein leið til þess þegar líkaminn er tilbúinn, en mikilvægt er að fá samþykki viðeigandi heilbrigðisstarfsmanns áður en þjálfun hefst eftir aðgerð
Kveiktu á stólnum og bíddu þar til aðalskjárinn birtist. Veldu síðan „Intelligent Mode – Sjálfvirk kerfi“, sem er sjálfvirka þjálfunarkerfið ætlað notendum stólsins.Næst velur þú „Female – Konur“ eða „Male – Karlar“ og síðan það þjálfunarkerfi sem hentar þínum markmiðum. Á skjánum eru mismunandi kerfi eftir því hvort valið er fyrir konur eða karla.Þegar þjálfunarkerfi hefur verið valið hefur þú þjálfunina á skjánum og stillir styrkinn smám saman upp. Þú átt að finna greinilega fyrir endurteknum samdráttum í grindarbotnsvöðvunum, en styrkurinn á að vera innan þægindamarka og þjálfunin á ekki að vera sársaukafull.Þegar réttri stillingu er náð geturðu sest afslöppuð/aður og leyft stólnum að sjá um þjálfunina. Þú þarft ekki sjálf/ur að framkvæma samdrættina á meðan HIFEM-þjálfunin fer fram.
Fyrir bókaðan tíma færðu sendan 6 stafa aðgangskóða í SMS. Þegar þú kemur að Partera slærðu kóðann inn á lyklaborðið við hurðina og hurðin aflæsist sjálfkrafa.Aðgangskóðinn gildir í 40 mínútur á meðan bókaði tíminn þinn stendur yfir. Þú þarft því hvorki lykil né aðstoð starfsfólks til að komast inn.Þegar þú ert komin/n inn geturðu læst og aflæst hurðinni að innan og haft fullt næði meðan á þjálfuninni stendur.
Þú bókar tíma beint í gegnum bókunarkerfið á Partera.is. Þar velur þú þá þjónustu eða þann pakka sem hentar þér, velur lausan tíma og gengur frá bókuninni á netinu.Þegar bókuninni er lokið færðu staðfestingu með upplýsingum um tímann. Fyrir bókaðan tíma færðu einnig þær upplýsingar sem þú þarft til að komast inn í rýmið og hefja þjálfunina.Ef þetta er fyrsti tíminn þinn er farið yfir helstu upplýsingar, markmið og mögulegar frábendingar áður en HIFEM-þjálfunin hefst.
Þegar þú kaupir fjölskiptakort hjá Partera gildir það í 2 ár frá kaupdegi. Öll skipti á kortinu þurfa að vera nýtt innan gildistíma þess.Við mælum með að tímarnir séu bókaðir með reglulegu millibili samkvæmt þjálfunaráætlun, þar sem regluleg þjálfun skiptir máli þegar markmiðið er að byggja upp styrk og stjórn grindarbotnsins.
Hjá Partera eru í boði þrjú fjölskiptakort auk staks tíma:Stakur tími – 12.900 kr.Brons – 6 tímar – 74.900 kr.Silfur – 10 tímar – 119.900 kr.Gull – 15 tímar – 159.900 kr.Fjölskiptakortin gilda í 2 ár, en stakur tími gildir í 3 mánuði samkvæmt núverandi upplýsingum í bókunarkerfi Partera.
Hjá Partera eru í boði þrjú fjölskiptakort auk staks tíma:Stakur tími – 12.900 kr.Brons – 6 tímar – 74.900 kr.Silfur – 10 tímar – 119.900 kr.Gull – 15 tímar – 159.900 kr.Fjölskiptakortin gilda í 2 ár, en stakur tími gildir í 3 mánuði samkvæmt núverandi upplýsingum í bókunarkerfi Partera.
Já. Áður en HIFEM-þjálfun hefst er mikilvægt að fara yfir helstu heilsufarsupplýsingar og mögulegar frábendingar til að tryggja að þjálfunin henti þér.Við bókun fyrsta tíma svarar þú spurningum sem snúa að heilsufari og atriðum sem geta haft áhrif á hvort HIFEM-þjálfun sé viðeigandi. Ef eitthvað kemur fram sem þarfnast frekara mats er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun hefst.Þetta er ekki almennt heilsufarsmat eða læknisskoðun heldur öryggisyfirferð sem tengist sérstaklega HIFEM-þjálfun og frábendingum hennar.
Það þarf lítinn sérstakan undirbúning fyrir fyrsta tímann. Þú mætir í þægilegum fatnaði og getur verið fullklædd/ur meðan á allri þjálfuninni stendur.Áður en þjálfun hefst er farið yfir helstu heilsufarsupplýsingar og mögulegar frábendingar. Einnig er gott að kynna sér leiðbeiningar um notkun stólsins fyrir fyrsta tíma.Fjarlægja þarf viðeigandi málmhluti og rafeindatæki áður en HIFEM-þjálfun hefst.
Best er að mæta í þægilegum fatnaði sem auðvelt er að sitja í. Þú þarft ekki að afklæðast og ert fullklædd/ur á meðan öll þjálfunin fer fram.Forðast skal fatnað með stórum málmhlutum á eða nálægt grindarbotnssvæðinu. Fjarlægja þarf einnig viðeigandi málmhluti og rafeindatæki áður en HIFEM-þjálfun hefst.
Já, þú getur notað símann meðan á þjálfuninni stendur, til dæmis til að hlusta á tónlist, hlaðvarp eða horfa á efni.Hins vegar ætti ekki að leggja símann á stólinn eða hafa hann mjög nálægt rafsegulspólunni í setunni meðan HIFEM-þjálfunin er í gangi. Hafðu símann frekar í hendinni eða á öruggum stað frá setu stólsins.
Það er almennt þægilegra að fara á salernið áður en þjálfun hefst og mæta með tiltölulega tóma þvagblöðru.Þannig getur þú setið þægilega meðan á 30 mínútna þjálfuninni stendur og einbeitt þér að þjálfuninni án óþæginda.
Þú hefur stjórn á styrkleikanum meðan á HIFEM-þjálfuninni stendur og getur lækkað hann ef samdrættirnir verða of kröftugir eða óþægilegir.Markmiðið er að finna fyrir greinilegum og kröftugum samdráttum í grindarbotnsvöðvunum, en þjálfunin á ekki að vera sársaukafull. Styrkurinn getur verið aukinn smám saman eftir því sem þér líður vel með.
Byrjaðu á lægri styrk og auktu hann smám saman eftir því sem þér líður vel með. Þú átt að finna greinilega fyrir því að grindarbotnsvöðvarnir dragist saman þegar rafsegulpúlsarnir virkja þá.Markmiðið er að ná kröftugum en þægilegum samdráttum. Hærri styrkur er ekki markmið í sjálfu sér og þjálfunin á ekki að vera sársaukafull.
Þegar þú hefur valið þjálfunarkerfi og stillt styrkinn geturðu setið afslöppuð/aður í stólnum á meðan þjálfunin fer fram. HIFEM-stóllinn sér um að framkalla endurtekna samdrætti í grindarbotnsvöðvunum og þú þarft ekki sjálf/ur að framkvæma samdrættina.Þú getur nýtt tímann til að slaka á, hlusta á tónlist eða hlaðvarp eða horfa á efni í símanum, svo lengi sem síminn er ekki lagður á eða mjög nálægt setu stólsins.
Þegar þjálfuninni lýkur stöðvast HIFEM-stóllinn sjálfkrafa. Þú getur þá staðið upp, gengið frá eftir þig og tekið með þér persónulega muni.Áður en þú ferð skaltu ganga úr skugga um að hurðin sé læst á eftir þér. Almennt er ekki þörf á sérstökum batatíma og þú getur haldið áfram með daglegar athafnir eins og venjulega.
Þegar þjálfuninni er lokið og þú ert tilbúin/n að fara skaltu ganga úr skugga um að þú hafir tekið alla persónulega muni með þér og ganga frá rýminu.Þegar þú ferð út lokar þú hurðinni á eftir þér og tryggir að hún sé læst. Aðgangskóðinn þinn er aðeins virkur á meðan bókaði tíminn þinn stendur yfir.
Þegar þú ert komin/n inn í herbergið geturðu læst hurðinni að innan til að tryggja næði meðan á þjálfun stendur.Þegar þú ert tilbúin/n að fara aflæsir þú hurðinni að innan og gengur út eins og venjulega. Hægt er að snúa hringlaga lásnum eða ýta á hringlaga miðjuhnapp til að opna.Aðgangskóðinn á lyklaborðinu er aðeins notaður til að komast inn að utan.
Athugaðu fyrst hvort þú hafir slegið 6 stafa aðgangskóðann rétt inn og hvort þú sért að nota hann á þeim tíma sem bókunin þín gildir.Ef kóðinn virkar enn ekki skaltu hafa samband við Partera svo hægt sé að aðstoða þig við að komast inn.
Ef þú kemur of seint er mikilvægt að hafa í huga að aðgangskóðinn og bókaði tíminn gilda aðeins innan ákveðins tímaglugga.Bókaður tími er 40 mín. og þjálfun eingöngu 30 mín. passa verður upp á að halda sig innan uppgefins bókaðs ramma vegna annara viðskiptavina.Þú getur samt nýtt þann tíma sem eftir er af bókuninni, en þjálfunartíminn gæti styst ef seinkunin er mikil. Ef þú sérð fram á að komast ekki á réttum tíma er best að breyta bókuninni ef það er mögulegt.
Þú getur stöðvað HIFEM-þjálfunina hvenær sem er ef þér líður ekki vel eða ef þú vilt hætta fyrr.Ef þú finnur fyrir verkjum, svima, óvenjulegum óþægindum eða öðrum einkennum skaltu stöðva þjálfunina og ekki halda áfram fyrr en ljóst er hvað veldur. Ef einkenni eru viðvarandi er mikilvægt að fá faglegt mat áður en þjálfun er hafin aftur.
Ef stóllinn eða skjárinn bregst ekki við skaltu fyrst stöðva þjálfunina og ganga úr skugga um að tækið sé rétt kveikt. Ekki reyna að opna, færa eða gera við tækið sjálf/ur.Ef vandamálið leysist ekki skaltu hafa samband við Partera svo hægt sé að aðstoða þig. Ef ekki er hægt að framkvæma þjálfunina vegna bilunar í búnaði verður málið leyst í samráði við Partera.
Byrjaðu á að velja „Intelligent Mode – Sjálfvirk kerfi“ og síðan „Female – Konur“ eða „Male – Karlar“ eftir því sem við á.Stundum gæti þurft að ýta á "Return" til að fara til baka í fyrri valmynd.Veldu svo það þjálfunarkerfi sem best passar við markmið þín. Ef þú ert óviss um hvaða kerfi á að velja skaltu ekki giska, heldur hafa samband við Partera og fá leiðbeiningar áður en þjálfun hefst.
Þú getur farið út og komið aftur inn á meðan aðgangskóðinn þinn er enn virkur innan bókaða tímans.Þegar þú kemur aftur slærðu einfaldlega 6 stafa aðgangskóðann inn á lyklaborðið við innganginn og hurðin aflæsist. Mundu að tryggja að hurðin sé læst þegar þú yfirgefur herbergið.
Á meðan bókaði tíminn þinn stendur yfir átt þú að hafa næði í herberginu. Þú getur læst hurðinni að innan meðan á þjálfun stendur.Ef einhver reynir að komast inn á meðan þú ert inni skaltu halda hurðinni læstri og halda áfram samkvæmt bókuninni þinni. Ef eitthvað óvenjulegt kemur upp er best að hafa samband við Partera.
Ef þú gleymir persónulegum munum í herberginu skaltu hafa samband við Partera eins fljótt og auðið er svo hægt sé að athuga hvort hluturinn hafi fundist.Ekki reyna að nota eldri aðgangskóða eftir að bókaði tíminn er liðinn, þar sem kóðinn er aðeins virkur innan gildistíma bókunarinnar.
Ef þú þarft aðstoð fyrir, á meðan eða eftir bókaðan tíma geturðu haft samband við Partera í gegnum þær samskiptaleiðir sem gefnar eru upp á Partera.is.Ef málið snýr að aðgangi, bilun í búnaði, bókun eða óvæntum vandamálum í herberginu, er best að hafa samband strax svo hægt sé að aðstoða þig sem fyrst.
Partera er hugsað sem persónulegt og næðislegt þjálfunarrými og almennt er gert ráð fyrir að aðeins sá sem á bókaðan tíma sé í herberginu meðan á þjálfun stendur.Ef þú hefur sérstaka þörf fyrir að fá aðstandanda eða aðstoðarmann með þér, er best að hafa samband við Partera fyrir tímann svo hægt sé að finna viðeigandi lausn.
Best er að forðast að borða meðan á þjálfuninni stendur, en þú getur haft vatn með þér og drukkið eftir þörfum.Þar sem þjálfunin tekur aðeins um 30 mínútur er almennt þægilegast að nýta tímann til að sitja afslöppuð/aður og leyfa stólnum að vinna á meðan þjálfunin fer fram.
Nei. HIFEM-stóllinn virkjar grindarbotnsvöðvana og framkallar vöðvasamdrættina fyrir þig með stýrðu rafsegulsviði. Þú þarft því ekki sjálf/ur að framkvæma grindarbotnssamdrætti meðan á þjálfuninni stendur.Þú getur setið afslöppuð/aður og leyft stólnum að sjá um þjálfunina. Hefðbundnar grindarbotnsæfingar geta þó verið gagnleg viðbót við HIFEM-þjálfun eftir þörfum og markmiðum hvers og eins. Ekki á meðan á þjálfun stendur.
Nei. Þú þarft ekki að spenna grindarbotnsvöðvana viljandi meðan á þjálfuninni stendur. HIFEM-tæknin virkjar taugar og vöðva grindarbotnsins og framkallar endurtekna samdrætti sjálfkrafa.Þú getur því setið afslöppuð/aður á meðan stóllinn sér um að virkja vöðvana og einbeitt þér að því að sitja þægilega og rétt í stólnum.
Já. Rétt setstaða skiptir máli svo rafsegulsviðið nái sem best að grindarbotnssvæðinu. Sestu vel inn á setu stólsins þannig að grindarbotninn sé staðsettur yfir miðju rafsegulspólunnar.Á meðan þjálfunin fer fram er best að sitja afslöppuð/aður og halda þægilegri, stöðugri stöðu. Ef þú finnur samdrættina ekki á réttum stað getur verið gagnlegt að stilla setstöðuna áður en styrkurinn er aukinn.
Byrjaðu á að athuga setstöðuna og ganga úr skugga um að grindarbotnssvæðið sé rétt staðsett yfir miðju setu stólsins. Rétt staðsetning skiptir máli svo rafsegulsviðið nái að virkja grindarbotnsvöðvana á markvissan hátt.Prófaðu að færa setstöðuna lítillega áður en þú eykur styrkinn. Ef þú ert enn óviss um staðsetningu eða virkni skaltu hafa samband við Partera og fá leiðbeiningar áður en þú heldur áfram.
Það getur gerst að samdrættirnir finnist missterkir hægra og vinstra megin, sérstaklega ef staðsetning í stólnum er ekki alveg miðjuð eða ef virkni vöðvanna er mismunandi milli hliða.Byrjaðu á að athuga setstöðuna og færa þig örlítið þar til samdrættirnir finnast jafnari. Ef munurinn er mikill eða viðvarandi er best að fá leiðbeiningar frá Partera áður en þjálfun er haldið áfram.
Já. HIFEM-tæknin getur einnig virkjað nærliggjandi vöðva, til dæmis í setu, mjöðmum eða neðri hluta kviðar, eftir staðsetningu þína í stólnum og styrk þjálfunarinnar.Markmiðið er þó að megináreitið fari á grindarbotnssvæðið. Ef þú finnur samdrættina aðallega annars staðar skaltu athuga setstöðuna og færa þig lítillega áður en styrkurinn er aukinn.
Já. Það er eðlilegt að upplifun á styrk geti verið mismunandi milli þjálfunartíma. Þættir eins og setstaða, dagsform og hvernig vöðvarnir bregðast við þjálfuninni geta haft áhrif á upplifunina.Byrjaðu því hvern tíma á þægilegum styrk og auktu hann smám saman eftir því sem þér líður vel með. Markmiðið er ekki að ná ákveðinni styrktartölu heldur að fá greinilega og kröftuga samdrætti innan þægindamarka.
Nei. Styrkurinn þarf ekki að vera sá sami í hverjum tíma og eðlilegt er að aðlaga hann eftir því hvernig þér líður og hvernig þú upplifir samdrættina hverju sinni.Markmiðið er að finna kröftuga og greinilega samdrætti innan þægindamarka, ekki að ná ákveðinni tölu á styrkleikaskalanum. Þú getur því aukið eða minnkað styrkinn eftir þörfum meðan á þjálfuninni stendur.
Þú átt að finna fyrir skýrum og kröftugum samdráttum í grindarbotnsvöðvunum, en þjálfunin á ekki að vera sársaukafull eða valda verulegum óþægindum.Réttur styrkur er einstaklingsbundinn. Byrjaðu lægra og auktu styrkinn smám saman þar til samdrættirnir eru greinilegir en innan þægindamarka. Hærri styrkur er ekki markmið í sjálfu sér – rétt setstaða og góð virkni grindarbotnsvöðvanna skipta einnig máli.
Hjá Partera er miðað við tvo þjálfunartíma á viku. Til að ná sem bestum árangri mælum við með 10 skiptum yfir 5 vikna tímabil, þannig að grindarbotninn fái reglulegt og markvisst þjálfunaráreiti.Rannsóknir á HIFEM hafa einnig notað 10 skipti með 2–3 tímum á viku, og ný rannsóknaráætlun notar nákvæmlega 10 skipti á 5 vikum, tvisvar í viku.Árangur er þó einstaklingsbundinn og getur meðal annars ráðist af upphafsstöðu, einkennum og markmiðum.
Já. Við mælum með tveimur þjálfunartímum á viku, þannig að nokkrir dagar séu á milli tíma. Hjá Partera er grunnáætlunin 10 skipti yfir 5 vikna tímabil.Þetta gefur grindarbotnsvöðvunum reglulegt þjálfunaráreiti og tíma á milli æfinga. Í rannsóknum á HIFEM hafa þjálfunartímar oft verið framkvæmdir tvisvar til þrisvar í viku og í sumum rannsóknum með að minnsta kosti 48 klukkustundir á milli tíma.Árangur er einstaklingsbundinn, en regluleiki yfir þjálfunartímabilið er mikilvægur hluti af uppbyggingunni.
Eftir 10 skipti yfir 5 vikna tímabil hefur grindarbotninn fengið reglulegt og markvisst þjálfunaráreiti. Rannsóknir á HIFEM hafa notað sambærilegar áætlanir, meðal annars 10 skipti með 2–3 tímum á viku, en rannsóknir nota þó mismunandi rannsóknaraðferðir.Að grunnþjálfun lokinni er gott að meta breytingar á styrk, stjórn, einkennum og daglegri virkni. Árangur er einstaklingsbundinn og því fer áframhaldandi þjálfun eftir þörfum og markmiðum hvers og eins.Grindarbotninn er vöðvahópur sem þarf áframhaldandi virkni til að viðhalda styrk og starfsemi, líkt og aðrir vöðvar líkamans. Því getur áframhaldandi grindarbotnsþjálfun eða viðhaldsþjálfun verið hluti af langtímaáætlun.
Það er einstaklingsbundið. Líkt og aðrir vöðvar þurfa grindarbotnsvöðvarnir áframhaldandi virkni til að viðhalda styrk og starfsemi. Því getur viðhaldsþjálfun hentað eftir að grunnáætlun lýkur.Rannsóknir hafa sýnt að breytingar eftir HIFEM-þjálfun geta verið til staðar mánuðum eftir að skipulagðri þjálfun lýkur, en langtímagögn eru enn takmarkaðri og árangur er mismunandi milli einstaklinga.Hjá Partera er því best að meta þörf fyrir áframhaldandi þjálfun út frá árangri, markmiðum og þörfum hvers og eins, frekar en að allir fylgi sömu viðhaldsáætlun.
Það fer eftir því hvernig þér líður eftir grunnþjálfunina og hvaða markmið þú hefur. Ef þú finnur að styrkur, stjórn eða önnur einkenni fara að breytast aftur getur verið gagnlegt að bæta inn viðhaldsþjálfun.Þörfin er einstaklingsbundin, þannig að frekar en að fylgja fastri reglu er best að meta stöðuna út frá árangri, einkennum og því hversu reglulega þú sinnir grindarbotnsþjálfun áfram.
Spjöllum saman
bottom of page
