top of page
Helga Reynisdóttir eigandi

Hver stendur á bak við Partera?

Ég heiti Helga Reynisdóttir og er eigandi Partera, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Ég hef víðtæka reynslu af heilsu kvenna og sérstakan áhuga á grindarbotnsheilsu, lýðheilsu og mikilvægi góðrar fræðslu.
 

Í starfi mínu sem ljósmóðir hef ég séð hversu algengt er að fólk glími við einkenni frá grindarbotni, oft án þess að ræða þau eða leita sér aðstoðar. Þvagleki, minni styrkur og skert stjórn eru gjarnan talin eðlilegur fylgifiskur barneigna eða hækkandi aldurs, þótt einkennin geti haft veruleg áhrif á daglegt líf og líðan.
 

Partera varð til út frá þeirri sannfæringu minni að grindarbotnsheilsa eigi að fá meira vægi og að aðgangur að markvissri þjálfun og skýrum upplýsingum þurfi að vera betri. Markmið mitt er að skapa aðgengilegt og virðingarfullt umhverfi þar sem fólk getur sinnt grindarbotnsheilsu sinni með næði og á eigin forsendum.

Við einföldum grindarbotnsþjálfun 

Partera er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í grindarbotnsþjálfun fyrir konur og karla. Við sameinum faglega þekkingu, skýra fræðslu og nútímalega HIFEM-tækni í markvissu þjálfunarfyrirkomulagi.

Við viljum gera grindarbotnsþjálfun að eðlilegum hluta af því að hugsa vel um líkamann.

Partera snýst um meira en tæknina sem við notum. Markmiðið er að grindarbotninn fái þá athygli sem hann á skilið sem mikilvægur hluti af heilsu og daglegri virkni.

Hjá Partera fer grindarbotnsþjálfun fram í sérstökum HIFEM-stól sem virkjar vöðva grindarbotnsins með rafsegulörvun.

Þú situr fullklædd/ur í stólnum á meðan þjálfunin fer fram. Engin inngrip eru nauðsynleg og styrkurinn er stilltur að þínum þörfum og þægindum. Þjálfunin er einföld í framkvæmd og krefst ekki sérstaks undirbúnings.

Grindarbotnsstóllinn gerir þjálfunina markvissa, þægilega og aðgengilega í rólegu og næðislegu umhverfi. Markmiðið er að hjálpa þér að virkja og styrkja grindarbotninn á einfaldan hátt.

Þjálfunin fer fram í sérstökum HIFEM-stól sem virkjar grindarbotnsvöðvana með rafsegulörvun. Þú
situr fullklædd/ur í stólnum á meðan á þjálfun stendur og styrkurinn er stilltur að þínum þörfum.
Mælt er með bómullarfötum án málmhluta, en að öðru leyti þarf engan sérstakan undirbúning.

Umhverfið er rólegt og afslappað. Á meðan þjálfunin stendur yfir getur þú hlustað á tónlist, hlaðvarp eða hljóðbók, lesið eða einfaldlega notið stundarinnar.

Eflum grindarbotninn 

Rafsegulbylgjur eru ekki sársaukafullar, heldur er um að ræða tilfinningu sem minnir á kitl

Hverjum hentar þjálfunin?

Breytingar á grindarbotni geta komið fram á ólíkum æviskeiðum, hjá bæði konum og körlum:


- Hjá konum tengjast þær oft meðgöngu, fæðingu, hormónabreytingum og aldri.


- Hjá körlum geta þær tengst aldri eða breytingum og/eða aðgerðum á blöðruhálskirtli.


Einkenni frá grindarbotni geta átt sér ólíkar orsakir. Markviss þjálfun hentar vel þegar um er að ræða veikleika eða skerta vöðvavirkni, en í öðrum tilfellum getur verið þörf á faglegu mati og annarri nálgun.

Þjálfunin fram í rólegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á þægindi og góða upplifun. Þú situr fullklædd/ur í grindarbotnsstólnum á meðan HIFEM-þjálfunin fer fram og þarft því hvorki að afklæðast né undirbúa þig sérstaklega.

Við viljum að tíminn hjá Partera sé einfaldur og þægilegur hluti af deginum. Að auðvelt sé að koma grindarbotns-þjálfuninni inn í daglega rútínu. Á meðan þjálfunin fer fram getur þú slakað á, hlustað á tónlist, podcast eða hljóðbók, lesið eða einfaldlega notið rólegrar stundar.

Markmiðið er að gera grindarbotnsþjálfun eins aðgengilega og þægilega og mögulegt er, þannig að auðvelt sé að sinna henni reglulega og á þínum eigin forsendum.

Þjálfun með rafsegulbylgjum getur verið jafn mikilvægur partur og að fara í ræktina

Langtímaávinningur

Regluleg þjálfun getur stutt við styrk, stjórn og virkni grindarbotnsins til lengri tíma. Líkt og með aðra vöðvahópa skiptir samfella máli þegar markmiðið er að byggja upp og viðhalda virkni.

Hjá Partera er lögð áhersla á að þjálfunin sé einföld í framkvæmd og geti orðið eðlilegur hluti af reglulegri heilsurækt.

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn Partera er að grindarbotnsheilsa verði eðlilegur og sjálfsagður hluti af almennri heilsu og líkamsrækt, með aukinni þekkingu, opnari umræðu og betra

aðgengi fyrir bæði konur og karla.

Markmið okkar er að halda áfram að þróa þjónustuna af fagmennsku, með áherslu á nýsköpun og þarfir viðskiptavina, og gera fleirum kleift að sinna grindarbotnsheilsu sinni á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Rafsegulbyylgjur  eru sendar upp í gegnum gólf stólsins þar sem viðkomandi situr.

Af hverju skiptir grindarbotninn máli?

Grindarbotninn gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum en fær oft minni athygli en aðrir vöðvahópar. Einkenni eins og þvagleki, minni stjórn eða breytingar á virkni eru algengari en margir gera sér grein fyrir og geta haft áhrif á daglegt líf og lífsgæði.


Partera vill auka þekkingu á þessu sviði og gera umræðuna eðlilegri, svo fólk hafi aðgang að skýrum upplýsingum og geti tekið upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu.

Grindarbotnsþjálfun í HIFEM stól

Þjónusta á þínum forsendum

Hjá Partera færð þú skýrar leiðbeiningar út frá þínum þörfum og markmiðum, í umhverfi þar sem næði, gott aðgengi og fagleg nálgun eru í fyrirrúmi.

Markmiðið er að fyrsta skrefið sé einfalt að taka og að þjálfunin falli auðveldlega inn í þitt daglega líf.

Þjálfunin er fyrir allan aldur 18+ þar sem fólk glímir við misjöfn vandamál á mismunandi tímum

Þjálfunin fram í rólegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á þægindi og góða upplifun. Þú situr fullklædd/ur í grindarbotnsstólnum á meðan HIFEM-þjálfunin fer fram og þarft því hvorki að afklæðast né undirbúa þig sérstaklega.

Við viljum að tíminn hjá Partera sé einfaldur og þægilegur hluti af deginum. Að auðvelt sé að koma grindarbotns-þjálfuninni inn í daglega rútínu. Á meðan þjálfunin fer fram getur þú slakað á, hlustað á tónlist, podcast eða hljóðbók, lesið eða einfaldlega notið rólegrar stundar.

Markmiðið er að gera grindarbotnsþjálfun eins aðgengilega og þægilega og mögulegt er, þannig að auðvelt sé að sinna henni reglulega og á þínum eigin forsendum.

bottom of page