top of page
Partera rými

Virkjaðu þinn innri styrk

Markviss grindarbotnsþjálfun fyrir konur og karla með nútímalegri HIFEM-tækni.

Þú situr fullklædd/ur í grindarbotnsstólnum og

hver þjálfunarlota tekur um 30 mínútur.

Partera grindarbotnsstóll

Hvað er HIFEM tækni og grindarbotnsstóll?

Hvernig virkar grindarbotnsstóllinn?

HIFEM stendur fyrir High-Intensity Focused Electromagnetic og er tækni sem notar öflugt, stýrt rafsegulsvið til að virkja taugar og vöðva grindarbotnsins.
 

Í setu stólsins er rafsegulspóla sem sendir rafsegulpúlsa að grindarbotnssvæðinu. Púlsarnir örva vöðvana og kalla fram endurtekna og kröftuga vöðvasamdrætti. Þannig fær grindarbotninn aukið þjálfunaráreiti og mun fleiri samdrætti á stuttum tíma en almennt er hægt að framkvæma með hefðbundnum grindarbotnsæfingum einum saman.


Betri líðan byrjar með sterkari grindarbotni

Grindarbotninn gegnir mikilvægu hlutverki í þvagstjórn, líkamsstöðugleika og kynheilbrigði. Styrkur og virkni hans geta breyst vegna barneigna, hormónabreytinga, hækkandi aldurs, álags eða aðgerða.

Grindarbotnsþjálfun getur stutt við aukinn styrk, betri stjórn og meira öryggi í daglegu lífi. Þarfir fólks eru ólíkar og geta tekið breytingum á mismunandi æviskeiðum.

Partera logo

Svona fer þjálfunin fram

1. Bókaðu tíma
 

Veldu lausan tíma sem hentar þér og svaraðu stuttum öryggisspurningum í bókunarferlinu. Þar getur þú einnig valið stakan tíma eða keypt þann pakka sem hentar þínum markmiðum.
 
2. Fáðu persónulegan aðgangskóða
 

Um 10–15 mínútum fyrir bókaðan tíma færðu SMS með einstökum aðgangskóða að Partera-rýminu. Kóðinn verður virkur við upphaf tímans og gildir á meðan bókaði tíminn stendur yfir.
 
3. Byrjaðu þjálfunina
 

Í rýminu færðu skýrar leiðbeiningar um notkun stólsins. Þú velur viðeigandi þjálfunarkerfi og stillir styrkinn smám saman að þínum þægindum.
 
4. Gakktu frá eftir þig
 

Að þjálfun lokinni fylgir þú einföldum leiðbeiningum um frágang og læsir rýminu þegar þú ferð.
Þannig er heimsóknin frá upphafi til enda á þínum forsendum.

HIFEM tæknin og grindarbotnsstóll

Ávinningur þjálfunarinnar

Regluleg grindarbotnsþjálfun getur aukið úthald vöðvanna og bætt getu þeirra til að bregðast við hreyfingu og álagi.

Markmiðið er að viðhalda virkni grindarbotnsins til lengri tíma og stuðla þannig að meira öryggi í daglegu lífi.

Fagleg leiðsögn

Þjálfunin hefst með persónulegri leiðsögn þar sem farið er yfir ferlið, markmið og hvað hentar þér hverju sinni.

Nútímaleg HIFEM-tækni

HIFEM-tæknin virkjar grindarbotnsvöðvana með endurteknum samdráttarlotum á meðan þú situr fullklædd/ur í stólnum.

Þægindi og næði

Þjálfunin fer fram í rólegu og aðlaðandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á þægindi, virðingu og góða upplifun.

0fb396ab-fa0b-477b-bcfb-5e11fc3aca50.png

„Með persónulegri leiðsögn og HIFEM-þjálfun hjá Partera fékk ég betri tilfinningu fyrir grindarbotninum og meiri skilning á eigin líkama.“

Anna S., Reykjavik

Árangurssögur

Reynslusögur fólks sem hefur prófað grindarbotnsþjálfun hjá Partera

„Mér fannst nálgunin á grindarbotnsheilsu einstaklega nýstárleg. Umhverfið hjá Partera er rólegt og notalegt og þjálfunin einföld og þægileg.“

Gunnar H., Reykjavik

„Leiðsögnin og fræðslan hjálpuðu mér að skilja betur hvað ég þurfti. Það var mjög gott að finna fyrir næði, öryggi og persónulegri þjónustu.“

Elin H., Reykjavik

Bókaðu tíma

Markviss grindarbotnsþjálfun með persónulegri leiðsögn í rólegu og þægilegu umhverfi.
Bókaðu tíma hjá Partera þegar þér hentar.

bottom of page